einfalt.is

Persónuverndarstefna

Síðast uppfært: 21. apríl 2026

1. Hver rekur einfalt.is?

Einfalt.is er rekið sem frumgerð á vegum Alexander Breki Jónssonar (kt. 000000-0000). Fyrirspurnir má senda á alexanderbrekij@gmail.com.

2. Hvaða gögn söfnum við?

Við söfnum eftirfarandi þegar þú notar einfalt.is:

  • Netfang þegar þú skráir þig inn með innskráningartengli.
  • Fjárhagsupplýsingar sem þú slærð inn sjálf/ur (mánaðarlegar tekjur, húsnæðiskostnaður, önnur útgjöld).
  • Upplýsingar um bíl sem þú vilt bera saman (tegund, verð, árgerð).
  • Sögu samanburða sem þú hefur reiknað, svo þú getir flett þeim upp aftur.
  • Nauðsynlega session-smáköku til að halda þér skráðum inn.

Við söfnum ekki lánshæfismati, bankayfirlitum, launagögnum eða öðrum opinberum gögnum á þessu stigi. Slík gögn, ef þau eru sótt yfir höfuð, eru á ábyrgð lánveitanda þegar þú ferð í umsókn hjá þeim.

3. Til hvers notum við gögnin?

  • Til að reikna greiðslugetu og bera saman við opinber kjör lánveitenda.
  • Til að halda þér skráðum inn milli heimsókna.
  • Til að sýna þér samanburði sem þú hefur reiknað áður.

4. Deilum við gögnum með þriðja aðila?

Við deilum gögnum aðeins þegar þú velur að sækja um lán hjá tilteknum lánveitanda — þá ferð þú yfir á þeirra vefsvæði og þeir sjá um sína eigin gagnaöflun og umsókn. Einfalt.is sjálft sendir engin persónugreinanleg gögn til lánveitenda að eigin frumkvæði.

Tæknilegir þjónustuaðilar sem við notum: Vercel (hýsing), Upstash (gagnagrunnur), Resend (innskráningartölvupóstur).

5. Hvað með rétt þinn?

Þú átt rétt á að fá aðgang að, leiðrétta eða eyða þeim gögnum sem við geymum um þig. Þú getur eytt öllum þínum gögnum úr appinu á heimasíðu þinni(takkinn “Eyða gögnunum mínum”) eða með tölvupósti á alexanderbrekij@gmail.com.

Þú getur einnig sent kvörtun til Persónuverndar á personuvernd.is.

6. Hve lengi geymum við gögn?

Við geymum samanburði og innsláttargögn á meðan aðgangurinn þinn er virkur. Ef þú eyðir aðganginum, eyðast öll gögn strax úr gagnagrunninum (geta lifað í öryggisafritum í mesta lagi í 30 daga). Innskráningartenglar renna út eftir 15 mínútur.

7. Breytingar á stefnu

Við munum uppfæra þessa stefnu þegar við bætum við nýjum virkni (t.d. raunverulegri gagnaöflun fyrir lánshæfismat). Breytingar verða tilkynntar á forsíðu áður en þær taka gildi.